Brákarborg fyllir sjötta tuginn

Börn og starfsmenn í leikskólanum Brákarborg ætla að fagna 60 ára afmæli skólans fimmtudaginn 20. september.

Afmælishátíðin hefst klukkan 14.30 með því að skólinn tekur við Grænfánanum, alþjóðlegri viðurkenningu fyrir umhverfistarf. Því næst ætla Brákarborgarbörnin að frumflytja nýjan skólasöng og gamlir nemendur leikskólans, sem nú skipa skólahljómsveit Austurbæjar, munu þeyta lúðra. Á boðstólum verða líka kökur og annað góðgæti.  

Allir eru velkomnir í afmælið.