Note: This news was published over two years ago.
Borgarbókasafn á Stæðaæði
Borgarbókasafn tekur þátt í Stæðaæði föstudaginn 21. september milli kl. 15 og 18. Við munum kynna bókasafnið fyrir vegfarendum og bjóða upp á „grænar bækur“ sem eru gjafabækur frá almenningi sem við komum áfram.
Stæðaæði (e. Park(ing) day) er alþjóðlegur baráttudagur fyrir fjölbreyttu borgarumhverfi og er haldinn í upphafi Samgönguviku ár hvert. Stæðaæði gengur út á að hvetja fólk til að taka bílastæði undir hverskyns starfsemi eða viðburði aðra en „að geyma bíla“. Í ár verður byrjað á horni Laugarvegar og Klapparstígs og vex eftir þátttöku.
Nánari upplýsingar um Stæðaæði og þátttöku er að finna á Facebook: