Ný hjólaþrautabraut í Öskjuhlíð

Miðvikudaginn 19. september verður opnuð ný hjólaþrautabraut opnuð í Öskjuhlíð. Um er að ræða „pumpu-braut“ (pump-tracking) sem farin er með sérstakri tækni og notuð til þjálfunar og leikja. Félagar í hjólreiðafélaginu Tindi eiga heiðurinn af lagningu brautarinnar og hafa unnið hana í samvinnu við Reykjavíkurborg, sem leggur til svæðið. Opnun brautarinnar er liður í dagskrá Samgönguviku sem nú stendur yfir. Brautin er staðsett við Nauthólsveg norðan við Háskólann í Reykjavík.

Fyrirmyndir að brautinni eru erlendar eins og nafnið „pump-tracking“ gefur til kynna, en útfærð af félögum í Tindi og hafa þeir veg og vanda að framkvæmdinni. Þeir hafa unnið hörðum höndum undanfarið við að móta brautina og þjappa undirlag.

Hjólreiðafélagið Tindur var stofnað í febrúar 2011 með það að markmiði að fjölga þátttakendum í keppnishjólreiðum á Íslandi, sem og þeim greinum sem stundaðar eru hvort heldur það eru samgönguhjólreiðar, keppnishjólreiðar eða bara hjólreiðar til skemmtunar, eins og segir á vef félagsins. Tindur er löglegt íþróttafélag innan ÍSÍ og stendur öllum opið til þátttöku.