Útgjöld vegna þjóðaratkvæðagreiðslu greidd úr ríkissjóði

 Vegna fréttaflutnings af samþykkt borgarstjórnar á tillögu um framkvæmd ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs sem fram á að fara þann 20. október nk. óskar skrifstofa borgarstjórnar eftir að koma eftirtöldu á framfæri.

Allur kostnaður við framkvæmd atkvæðagreiðslunnar greiðist úr ríkissjóði. Reykjavíkurborg hefur aldrei haft útgjöld af framkvæmd almennra kosninga í Reykjavík, að sveitarstjórnarkosningum undanskildum. Með samþykkt borgarstjórnar í gær var Reykjavíkurborg að uppfylla lagalegar skyldur sínar samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis.

Með vísan til 5. gr. laga um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, nr. 91/2010, sbr. ályktun Alþingis 24. maí 2012, skal fara fram hinn 20. október 2012 ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er þegar hafin.   Í lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna kemur fram að um atkvæðagreiðsluna sjálfa, undirbúning hennar og atkvæðagreiðslu utan kjörstaða og á kjörstað fer að öðru leyti samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á. Í lögum um kosningar til Alþingis kemur fram að ríkissjóður greiðir nauðsynlegan kostnað við störf kjörstjórna og kjörgagna. Í lögunum koma jafnframt fram ýmsar skyldur sveitarstjórna.

Á fundi borgarstjórnar í gær voru lagðar fram tillögur um kjörstaði í Reykjavíkurkjördæmunum, um þóknanir fyrir störf í kjörstjórnum, um verkefni yfirkjörstjórna og fullnaðarafgreiðsluheimild borgarráðs á staðfestingu kjörskrár og úrskurða um breytingar á henni og staðsetningu yfirkjörstjórna. Eru tillögurnar í samræmi við   lagaskyldu sveitarfélaga í aðdraganda kosninga. Bent skal á að sambærilegar tillögur eru ætíð samþykktar í borgarstjórn í aðdraganda kosninga og hafa hingað til verið samþykktar samhljóða og án athugasemda.