Fossvogsskóli heiðraður fyrir að efla hjólreiðar

Fossvogsskóli, sem til margra ára hefur byggt um jákvæða stemningu fyrir hjólreiðum, fékk í morgun Hjólaskálina, sem er viðurkenning fyrir eflingu hjólreiða. Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, afhenti skálina við upphaf ráðstefnu um hjólreiðar sem haldin er í Iðnó í dag. Óskar S. Einarsson, skólastjóri Fossvogsskóla ásamt nemendum og fulltrúa kennara, veitti viðurkenningunni viðtöku. Hópurinn kom á hjólum til afhendingarinnar.

 

Í Fossvogsskóla er hlúð að hjólreiðum með margvíslegum hætti. Í skólanum er aðstaða til kennslu hjólaviðgerða og síðustu fjögur ár hafa allir nemendur í 6. og 7. bekk fengið kennslu í hjólafærni.  Um 160 hjólastæði eru á lóð skólans þar sem góð yfirsýn er yfir þau.



Nemendur eru hvattir til þess að koma í skólann árið um kring á reiðhjóli og síðustu þrjú ár hefur verið haldin sérstök hjólavika þar sem nemendur eru meðal annars hvattir til að fara í hjólaferðir í frímínútum. Á skólaárinu eru tveir hjóladagar þar sem allir nemendur skólans fá leiðsögn um góða umhirðu hjóls og hjálms, auk þess sem Dr. Bæk býður upp á hjólaskoðun ár vorin.

Óskar S. Einarsson, skólastjóri segir að um helmingur nemenda komi á hjóli í skólann og til að allt gangi nú vel fyrir sig leggur skólinn ríka áherslu á öryggismál. ,,Skólinn hefur sérstakar reglur um hjólreiðar. Við leggjum mikla áherslu á að nemendur noti hjálm og vorum einna fyrst til að setja þá reglu.“ 

 

Myndir í hærri upplausn:

Fyrir utan Iðnó (1 Mb) 

Tekið við verðlaununum (0,83 Mb)