Gleði á bílastæðum

Það mun ríkja ævintýraleg stemning í bílastæðahúsum borgarinnar á morgun, laugardag. Í dag er verið að breyta stæðum í fjórum bílastæðahúsum í miðborginni og ökuþórar sem nota þjónustu húsanna ættu ekki að láta sér bregða þegar þeir leggja við hliðina á bíói, kaffistofu eða hjólaskautadiskói. Það eru arkitektanemar í Listaháskóla Íslands sem leggja stæðin undir sig til  að vekja umræðu um nýtingu rýmis í borginni.

Notuð eru húsgögn úr Góða hirðinum, nytjamarkaði Sorpu, í þetta líflega verkefni. Bílastæðasjóður styrkir verkefnið og lánar bílastæðin. Haldið er utan um verkefnið hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Dagskráin í hnotskurn:

Nemarnir koma sér fyrir á föstudaginn 21. september og öllum er velkomið að fylgjast með. Laugardaginn 22. september verður opið hús frá kl. 12 - 16.

  • Í Stjörnuporti verður Stjörnubíó endurvakið og þar verður boðið uppá bíó og popp.
  • Í bílastæðhúsinu við Vitatorg verður hjólaskautadiskó og þar verður hægt að leigja hjólaskauta og skauta undir diskókúlu við dynjandi danstónlist.
  • Í Traðarkoti verður útsýnisstofa þar sem fólki gefst tækifæri á að njóta þess útsýnis sem bílar alla jafna sitja einir að.
  • Í bílakjallara Ráðhússins verður betri stofa þar sem gestum er boðið upp á kaffi og kleinur.

 

Framtakið er hluti af dagskrá Stæðaæðis í Reykjavík (Park(ing)day) sem er í dag, föstudaginn 21. september. Í dag koma  nemarnir sér fyrir og á laugardag verða þeir með ,,opið hús“ (búsvæði)  í tilefni af Bíllausa deginum en hann markar lok Evrópsku samgönguvikunni sem nú stendur yfir. Nemarnir vinna undir leiðsögn kennara sinna sem eru Hildigunnur Sverrisdóttir, Anna María Bogadóttir, Marcos Zotes og Massimo Santanicchia.

Nánar um Stæðaæði í Reykjavík má finna á vefsíðunni www.reykjavik.is/staedaaedi.  

Sjá viðburð á Facebook.