Reykjavíkurborg óskar eftir frambjóðendum í fjölmenningarráð

Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar verður haldið í annað sinn laugardaginn 10. nóvember í Borgarleikhúsinu. Á þinginu fer fram kosning í fjölmenningaráð en því er ætlað að vera ráðgefandi fyrir mannréttindaráð Reykjavíkurborgar og stofnanir borgarinnar í málefnum innflytjenda.

Kosnir verða 7 aðalamenn og 7 varamenn til tveggja ára. Allir innflytjendur af erlendum uppruna sem orðnir eru 18 ára og eiga lögheimili í Reykjavík geta boðið sig fram og kosið.

Framboðsfrestur er til og með 12. október. Áhugasamir vinsamlegast hafi samband við mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur með tölvupósti mannrettindi@reykjavik.is eða í símna 411 4153.