Vesturbæjarfléttan
Föstudaginn 28. september verður sameiginlegur starfsdagur stofnanna Skóla- og frístundasviðs í Vesturbænum. Dagskráin er stútfull af efni, metnaðarfullum smiðjum og einnig verður dansleikur um kvöldið. Allar nánari upplýsingar á facebooksíðunni SFS samstarf í Vesturbæ sem finna má hér. Mögulegt er að skrá sig hér.
Dagskrá
Íþróttahús Hagaskóla
8.45 - Opnunarávarp.
9.00 - Ávarp sviðsstjóra SFS.
9.15 - Kaffi – Hugmynda- og tengslatorg starfsmanna.
10.00 - Hvernig vinnufélagi er ég? Fyrirlestur Sigurjóns Þórðarsonar.
Hagaskóli
12.00 - Matarhlé. Boðið uppá súpu í Hagaskóla.
Hagaskóli og víðar
13.00 - 15.00 - Smiðjur, málstofur, verkefnavinna, fundir.
Félagsheimili Seltjarnarness
22.00 - Dansleikur þar sem Gullfoss og Geysir sjá um tónlistina. Allar nánari upplýsingar á facebooksíðunni SFS samstarf í Vesturbæ. Skráning á www.hagaskoli.is/skraning.
Smiðjur eftir hádegi
Heilsueflandi grunnskóli - Hagaskóli - í Hagaskóla.
Vinátta virðing og jafnrétti - Hagaskóli - í Hagaskóla.
Leikir og útieldun - Frosti - á Hagatorgi.
Tilfinningabækur í lífsleikni - Gullborg - í Hagaskóla.
Myndlist og sjálfsmynd - Gullborg - í Hagaskóla.
Samtal starfsfólks eldhúsa - Ægis-, Sæ- og Grandaborg - í Hagaskóla.
Sundur og saman - Ægisborg - í Hagaskóla.
Nám í skapandi ferli - Sæborg - í Hagaskóla.
Ég og þú og allir hinir - Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur - í Hagaskóla.
Einhverfa - Hagaborg/Vesturgarður - í Hagaborg efri hæð.
Ritunarsmiðja og fjölbreytt vinnubrögð - Vesturbæjarskóli - í Hagaskóla.
Hóplestur í Grandaskóla - Grandaskóli - í Hagaskóla.
Barnaráð og skapandi starf - Frostheimar - í Frostheimum.
Lýðræði í leik og starfi - Frostheimar - Hagaskóli og við Melaskóla.
Umhverfismennt - kynning á Comeniusarverkefni.
Drafnarborg/Dvergasteinn - í Hagaborg.
Málstofa um velferð barna - Vesturgarður - í Hagaskóla.
Málstofa um áfallamál - Vesturgarður - í Hagaskóla.
Stærðfræði í daglegu lífi - Melaskóli - í Hagaskóla.
Læsi í víðum skilningi/Umhverfi Melaskóla - Melaskóli - í Hagaskóla.
Tónlistarsmiðja - Vesturbæjarskóli.
Tungumálasmiðja - Vesturbæjarskóli - í Hagaskóla.
Smiðja í anda Reggiostefnunnar - Tjarnarborg/Öldukot - í Tjarnarborg.
Málstofa um einelti - Vesturgarður - í Hagaskóla.
Lesum og skiljum - Hagaskóli - í Hagaskóla.