Lestrarhátíð í Reykjavík í október
Í október verður haldin fyrsta Lestrarhátíðin í Bókmenntaborginni Reykjavík. Hún fer þannig fram að borgarbúar á öllum aldri sameinast um að njóta þess að lesa eina tiltekna bók, ræða hana, uppgötva og vinna með út frá öllum mögulegum sjónarhornum. Í mánuðinum verða allir þeir sem gera Reykjavík að bókmenntaborg virkjaðir: skólar, bókasöfn, bókaútgefendur, rithöfundar og lesendur. Lestrarhátíðin er eitt af lykilverkefnum Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO og til stendur að hún verði að árlegum viðburði. Í október lifnar yfir Bókmenntaborginni og býðst borgarbúum á öllum aldri að taka þátt með ýmsum hætti.
Vögguvísa í brennidepli 2012
Nóvellan Vögguvísa eftir Elías Mar verður í brennidepli á þessari fyrstu Lestrarhátíð Bókmenntaborgar en þessi saga frá Reykjavík eftirstríðsáranna er gjarnan sögð vera ein fyrsta Reykjavíkursagan. Verkið hefur þá sérstæðu í íslenskri bókmenntasögu að í því er lífi utangarðsunglinga á Íslandi í fyrsta sinn lýst í skáldverki, þar sem tónlist, tíska, kvikmyndir og tungumál æskufólks hinnar ungu borgar er alltumlykjandi. Elías Mar lagðist í umfangsmikla rannsóknarvinnu á tungutaki reykvískra unglinga og safnaði saman helstu slanguryrðum og orðasamböndum úr máli þeirra. Í nýrri útgáfu bókarinnar, sem Lesstofan gefur út, gefur að líta orðasafnið í fyrsta sinn í heilu lagi.
Samstarf við skóla
Vögguvísa verður nýtt til kennslu við unglingadeildir margra reykvískra grunnskóla og munu framhaldsskólanemar standa fyrir lestrarmaraþoni á bókasöfnum borgarinnar.
Þrátt fyrir að bókin sjálf sé skrifuð með unglinga og fullorðna í huga þá geta yngri borgarbúar einnig geta tekið þátt. Í tilefni hátíðarinnar munu leikskólar vinna með vögguvísur með ólíkum hætti og Pollapönkararnir og leikskólakennararnir Haraldur Freyr Gíslason og Heiðar Örn Kristjánsson semja nýja vögguvísu sem verður gefin leikskólum borgarinnar.
Fjölbreytt dagskrá
Hátíðin verður sett þann 1. október á Borgarbókasafni Reykjavíkur. Út allan mánuðinn verður í kjölfarið boðið til lifandi dagskrár helgaðri Vögguvísu Elíasar.
Boðið verður upp á sögu- og bókmenntagöngur um slóðir Vögguvísu og annarra verka Elíasar undir leiðsögn Hjálmars Sveinssonar, sem er sérfróður um höfundinn og bækur hans.
Reykvískir grínistar verða af tilefni hátíðarinnar einnig virkjaðir, en þau Anna Svava Knútsdóttir, Bergur Ebbi, Dóri DNA og Saga Garðarsdóttir munu koma fram í myndskeiðum þar sem spunnið er út frá slangurorðasafni Elíasar. Enn fremur teiknar myndasagnahöfundurinn Hugleikur Dagsson nýjar myndir, innblásnar af unglingaslangri Vögguvísu.
Um leið verður öllum borgarbúum boðið að senda inn sitt eigið slangur, sem safnast saman í nýtt safn á heimasíðu hátíðarinnar, en þar stendur einnig til boða að taka þátt í lifandi leshring um Vögguvísu.
Undir lok mánaðarins verður blásið til málþings, í samstarfi við Lesstofuna, Bókmenntafræðistofnun HÍ og Landsbókasafns-Háskólasafns, um Vögguvísu og Elías Mar.
Fjölmargt fleira verður á dagskrá en hana má nálgast í heild sinni á heimasíðu Lestrarhátíðar (www.bokmenntir.is).
Orðið er frjálst
Lestrarhátíð Bókmenntaborgarinnar Reykjavíkur er grasrótarhátíð þar sem allir þeir sem vilja bjóða upp á viðburði og dagskrá sem tengist þemanu hverju sinni geta tekið þátt.
Slagorð Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO er „Orðið er frjálst“ og í þeim anda eru allir borgarbúar hvattir til þess að taka þátt, hvort sem það er með því að lesa bókina, taka þátt í umræðunni, senda inn slangur eða njóta einhverra þeirra fjölmörgu viðburða sem Bókmenntaborgin hefur upp á að bjóða í október.