Gjaldskrár hækka minna í Reykjavík 2013 en áætlað var
Gjaldskrár Reykjavíkurborgar vegna þjónustu munu aðeins hækka um 5.6% á næsta ári. Fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir 10,85% meðalhækkun gjaldskráa á árinu 2013. Borgarráð staðfesti breytingarnar á fundi sínum í morgun.
Reykjavíkurborg hefur státað af lægri gjaldskrám fyrir þjónustu sveitarfélagins en önnur sveitarfélög hér á landi og með þessari samþykkt er það tryggt enn frekar árið 2013.
Við undirbúning fjárhagsáætlunar árið 2011 var tekin sú ákvörðun að hækka gjaldskrár með væntri verðbólgu en auk þess um 5.35% á hverju ári 2011, 2012 og 2013 til að færa verðgildi þeirra til þess sem var í upphafi árs 2008. Tveir fyrstu áfangarnir eru að baki en fallið verður frá þriðja áfanganum og gjaldskrár fyrir þjónustu aðeins hækkaðar um 5.6%. Hækkunin felur í sér ígildi 1,7% vegna vanáætlaðrar verðbólgu á þessu ári og 3,9% vegna áætlaðrar verðbólgu árið 2013.
Ákvörðunin hefur í för með sér að breytingar verða á fjárhagsrömmum fagsviðanna vegna undirbúnings fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013.
Í tillögunni sem fylgir hér með sem PDF skjal má sjá hvernig gjaldskrár í Reykjavík verða miðað við þessar forsendur fyrir árið 2013 í samanburði við önnur sveitarfélög. Endanlegar ákvarðanir um gjaldskrár vegna þjónustu borgarinnar munu birtast við framlagningu frumvarps að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar í lok október.