Hólabrekkuskóli fær plöntulykil
Nemendur og starfsfólk Hólabrekkuskóla voru færðar góðar gjafir á dögunum þegar fulltrúar Genium á Íslandi, Sigmundur Helgi Brink og Guðmundur Freyr Hallgrímsson, afhentu skólanum forritið Plöntulykilinn. Þetta er greiningarlykill fyrir íslensku flóruna fyrir farsíma og spjaldtölvu og er ætlaður öllum grasafræðingum frá 5 ára aldri.
Við þróun og smíði hugbúnaðarins var leitað í grasasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands þar sem farið var yfir tegundir íslensku Flórunnar. Leitað var eftir séreinkennum hverrar plöntu, þau skráð og flokkuð niður. Því næst voru einkennin borin saman við aðrar tegundir og þannig voru auðeinkenni tegunda meðal annars dregin fram.
Styrktaraðilar fyrir þróun Plöntulykilsins voru Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Náttúrufræðistofnun, Landgræðslan, Veiðimálastofnun Hátækni og hefur þetta forrit verið í vinnslu frá árinu 2010.
Sara Riel listamaður teiknaði allar skýringarmyndir í plöntulyklinum.