Ný skólalóð og hreystibraut tekin í notkun í Réttarholtsskóla
Nemendur, starfsfólk og foreldrar öttu í dag kappi í nýjum leiktækjum á skólalóðinni í Réttarholtsskóla. Lóðin hefur tekið stakkaskiptum í sumar, sett hafa verið upp leiktæki, körfuboltavöllur, hreystibraut, bekkir og borð. Af þessu tilefni var efnt til hátíðar sem hófst á víðavangshlaupi um næsta nágrenni skólans með þátttöku allra nemenda. Því næst en var slegið upp pulsuveislu og farið í ýmsa leiki með þátttöku foreldra þar sem nýju tækin voru prófuð. Almenn ánægja ríkir með endurbæturnar. Ráðist verður í enn frekari endurbætur á skólalóðinni næsta sumar.