Fjör á Vesturbæjarfléttu
Í dag er sameiginlegur starfsdagur allra stofnana skóla- og frístundasviðs í Vesturbæ. Hátt í fimm hundruð manns, sem starfa í leikskólum, grunnskólum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum í hverfinu, taka þátt í starfsdeginum og njóta gagnkvæmrar fræðslu og skemmtunar.
Dagurinn hófst á samkomu í íþróttahúsi Hagaskóla þar sem Ragnar Þorsteinsson sviðsstjóri flutti ávarp og hugmyndatorg stofnana skóla- og frístundasviðs var opnað. Þá flutti Sigurjón Þórðarson hugvekju um gildi samstarfs og gæði skapandi vinnustaða. Því næst hófust ýmsar fagsmiðjur í Hagaskóla og Melaskóla.
Óhætt er að segja að ánægja ríki á þessum nýstárlega starfsdegi þar sem þekkingarmiðlun milli stofnana er í brennidepli. Það er von undirbúningshópsins að með honum hafi verið markað upphaf að enn frekara samstarfi þeirra stofnana sem sinna skóla- og uppeldisstarfi í Vesturbænum.