Borgin gerir tilboð í Keilugranda 1

 

Reykjavíkurborg hefur gert kauptilboð í lóðina að Keilugranda 1. Tilboðið hljóðar upp á 60 milljónir króna í reiðufé við afhendingu afsals ásamt því að greitt er með þremur eignum sem Reykjavíkurborg lætur ganga upp í kaupverðið. 

Um lóðina að Keilugranda 1 hefur ríkt nokkur óvissa en þar hafa verið uppi óskir um mikla uppbyggingu sem er ekki í takt við hugmyndir skipulagsyfirvalda í Reykjavík. Með því að kaupa lóðina getur Reykjavíkurborg skipulagt lóðina eftir eigin óskum en gert er ráð fyrir hóflegri þéttingu byggðar á reitnum sem samræmist nýju aðalskipulagi.

Í greinargerð framkvæmda- og eignasviðs til borgarráðs segir að ekki sé talin mikil fjárhagsleg áhætta af kaupunum fyrir Reykjavíkurborg þar sem áætlað er að kaupverðið skili sér aftur með sölu á byggingarrétti á lóðinni. Lóðin er í næsta nágrenni við Grandaskóla og íþróttasvæði KR.

Á lóðinni stendur nú skemma sem Reykjavíkurborg eignast með kaupunum en þar var SÍF lengst af til húsa.

Eignirnar sem Reykjavíkurborg lætur ganga upp í kaupverðið eru Suðurlandsbraut 32, 2. hæð, Einimelur 19 og Búðargerði 9, íbúð á 2. og 3. hæð.