Borgarstjóri heimsækir Langholtsskóla í tilefni 60 ára afmælis skólans
Jón Gnarr borgarstjóri heimsótti Langholtsskóla í morgun í tilefni af 60 ára afmæli skólans. Afmælishátíðin hófst klukkan 11 og stóð fram eftir degi. Gamlir nemendur, starfsmenn, foreldrar og aðrir velunnarar Langholtsskóla mættu á hátíðina og fögnuðu þessum merku tímamótum. Setningarhátíð var haldin á skólalóðinni og hófst hún á því að Skólahljómsveit Austurbæjarskóla spilaði nokkur lög og því næst hélt Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri ræðu þar sem hann reifaði sögu skólans. Jón Gnarr, borgarstjóri, óskaði kennurum og nemendum til hamingju með afmælið og færði skólanum Ipad spjaldtölvu í afmælisgjöf sem Hreiðar skólastjóri veitti viðtöku. Því næst var haldið inn í skólann þar sem nemendur sýndu afrakstur af þemavinnu um sögu skólans sem gefur skemmtilega innsýn í skólastarfið fyrr og nú.
Byggð hófst í Langholti og nágrenni árið 1918 en þá reis bærinn Langholt þar sem nú mætast Holtavegur og Sunnuvegur. Næstu áratugina fjölgaði íbúum á svæðinu og byggðin þéttist við Langholtsveg. Er leið á fimmta áratug aldarinnar var orðið aðkallandi að byggja skóla í hverfinu þar sem langt þótti fyrir börnin að sækja kennslu í Laugarnesskóla. Árið 1948 var tekin ákvörðun í bæjarstjórn um að reisa skóla sem þjóna myndi Langholtshverfi. Húsameistararnir Einar Sveinsson og Gunnar Ólafsson teiknuðu skólann sem var tilbúinn haustið 1952.
Langholtsskóli var vígður föstudaginn 14. nóvember þetta sama ár. Miklar breytingar hafa orðið á Langholtsskóla frá stofnun hans og hefur fjórum sinnum verið byggt við hann.Auk viðbygginga hafa verið gerðar miklar endurbætur á innviðum skólans, endurnýjaðar list- og verkgreinastofur á jarðhæð, stjórnunarálman tekin í gegn og nýtt bókasafn orðið til. Skólalóðin hefur einnig gengið í endurnýjun lífdaga og þykir einhver sú glæsilegasta í borginni.