Páfagaukurinn Olli tekur á móti gestum í dag

Páfagaukurinn Ollie Kinchin (kallaður Olli) er tvítugur þriðjudaginn 2. október 2012.  Af því tilefni tekur hann á móti gestum í miðasölu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins á opnunartíma á afmælisdaginn og gerir það sem honum finnst skemmtilegast, að hitta fólk, segja „Halló“. og bjóða þeim upp á hnetur.

Afmælisdagurinn er reiknaður út frá þeim tíma er Olli klaktist úr eggi 2. október 1992 í Florida í Bandaríkjunum.  Páfagaukurinn hefur undanfarið ár verið í umsjá forstöðumanns Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, Tómasar Óskars Guðjónssonar, og verður það til ársloka 2013 þar sem eigendur hans þau Árni Jensson og Karen Kinchin eru búsett erlendis til þess tíma.  

Afmælisdagur Olla hefst líkt og aðra daga á því að hann vaknar en hann sefur í bílskúrnum, líka þegar hann hefur ekki gert neitt af sér.  Eftir að hafa flogið aðeins um garðinn sest hann upp í uppáhaldstréð sitt og fær sér tréflís til að stanga úr gogginum. 

Um kl: 8.30 fer hann í ferðabúr og beint á skrifstofuna í Húsdýragarðinum þar sem stórt og rúmgott búr bíður hans.  Oftast er samt byrjað á að fá sér að drekka vatn úr krana meðan starfsfólkið hitar sér kaffi.  Síðan er morgunmaturinn étinn.  

Á daginn dundar hann sér við að spjalla við og herma eftir starfsfólkinu og dýrunum í Húsdýragarðinum. Oft kallar hann skipandi á Haul húsvörð "Komdu Haukur" enda eru þeir miklir vinir.

Fuglinn er mjög kátur þegar hann fer af stað heim eftir dag á skrifstofunni.  Á leiðinni heim á hann það til að vera mjög kurteis og segja „Sæll og blessaður“ (framburður eins og hjá Bubba Morthens) við fólk sem bíður í bílum sínum á umferðarljósum. Þannig kveðju kastaði hann á innanríkisráðherra um daginn en Olli var ekki virtur svars enda óvíst hvort páfagaukar nái tali af ráðherra. 

Olli er af ætthvísl páfagauka sem lifa villtir í Eyjaálfu og nefnast Kakadúar.  Þeir eru af ýmsum stærðum og mismunandi litum allt eftir tegundum.  Sameiginlegt með þeim er að allir hafa topp sem þeir geta reist og tjáð tilfinningar sínar með.  Olli er svokallaður Hvíttoppur og þeir lifa villtir á eyjum Indónesíu.