Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur – vara inniheldur glútein (hveiti).
Yndisauki hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að að innkalla og endurbæta umbúðamerkingar Súpersalats með Quinoa þar sem ofnæmis- og óþolsvaldur er ekki merktur á umbúðum vörunnar.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Yndisauki.
Vöruheiti: Súpersalat með Quinoa.
Framleiðandi: Yndisauki ehf., Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík.
Nettóþyngd: 420 g.
Umbúðir: Plastöskjur.
Best fyrir: 28.09.12, 30.09.12, 03.10.12.
Strikanúmer: 5694230012732.
Dreifing: Heilsuhúsið Lágmúla, Heilsuhúsið Laugavegi, Heilsuhúsið Kringlunni, versluninni Vísir Laugavegi, Hreyfing Glæsibæ.
Viðskiptavinir sem keypt hafa Súpersalat með Quinoa merkt Yndisauka með best fyrir dagsetningum 28.09.12, 30.09.12, 03.10.12 og eru viðkvæmir fyrir hveiti og afurðum úr því eru beðnir um að neyta hennar ekki og skila til Yndisauka ehf., Vatnagörðum 6, gegn endurgreiðslu.