Verðlaunaafhending í hönnunarsamkeppni um skemmtilegri Öskjuhlíð

Jón Gnarr borgarstjóri veitti í gær viðurkenningar í hönnunarsamkeppni um skemmtilegri Öskjuhlíð. Í samkeppnina bárust tillögur frá 58 aðilum og voru margar þeirra mjög fjölbreyttar og frjóar. Dómnefnd veitti 10 tillögum viðurkenningu og verða þær til sýnis fram í október á sýningarsvæði þjónustuvers borgarinnar, Borgartúni 12 – 14 og á vef Reykjavíkurborgar.



Greina mátti samhug meðal langflestra þeirra er sendu inn tillögur á þann veg að ekki sé þörf á gagngerri umbyltingu á Öskjuhlíð heldur frekar að gera eigi svæðið fjölbreyttara, þörf sé á að efla útivistarmöguleika Öskjuhlíðarinnar og að styrkja svæðið sem fræðslu og safnasvæði. Þessi niðurstaða veitir góða leiðsögn fyrir forsögn að fyrirhugaðri fagsamkeppni fyrir rammaskipulag. Dómnefnd skipuðu: Jón Gnarr borgarstjóri, formaður dómnefndar, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, heimsspekingur og rithöfundur, Ragnhildur Skarphéðinsdóttir landslagsarkitekt FÍLA, Sigrún Helga Lund, stærðfræðingur og Ómar Ragnarsson, fréttamaður.

Í 1. til 3. sæti urðu:

1-2 sæti, 150.000 kr. Öskjuhlíð, höf. Guðný Marta Guðlaugsdóttir

Skýrar hugmyndir sem byggja á því að styrkja landfræðilega eiginleika svæðisins, undirstrika sérkenni Öskjuhlíðarinnar og tengsl þess við menningu og sögu.  Höfundur leggur fram margar góðar hugmyndir af tengingum,  hvíldarstöðum og almenna nýtingu svæðisins.

1-2, sæti, 150.000 kr. Herminjar í hlíðinni, höf. Magdalena Sigurðardóttir

Mjög vel framsett hugmynd í máli og myndum um afmarkað og vel skilgreint viðgangsefni. Fram kemur hvernig varðveita megi og miðla sögu þeirra herminja  frá seinni heimsstyrjöldinni sem eru í Öskjuhlíðinni.  

3 sæti, 100.000 kr. Rathlaupabraut, höf. Rathlaupaklúbburinn Hekla

Tillagan sýnir hugmynd að varanlegum rathlaupabrautum  í Öskjuhlíðinni sem nýst gætu reynslumiklum rathlaupurum, ferðamönnum, skólum eða hverjum þeim sem áhuga hafa á að spreyta sig í rathlaupi og til að gera Reykjavík fært að taka þátt í alþjóðlegri rathlaupakeppni. 



Aukaviðurkenningar, 50.000 hver :



Hugmynd að náttúruvísindaskóla og ævintýragarði
,  Hildur Steinþórsdóttir

Skemmtilegri Öskjuhlíð, Eirný Þórólfsdóttir og Garðar Adolfsson og dæturnar Hekla, Eyja og Katla

Náttúru – og listaupplifunarstígar, Perla Dís Kristinsdóttir og Niklas Dahlström

Hjólabrautir í Öskjuhlíð, Arnaldur Gylfason, Kári Halldórsson, Rúnar Theodórsson, Böðvar Þórisson

Útivistarsvæðið Öskjuhlíð, Edda Ýr Garðarsdóttir og synirnir Nökkvi og Garðar Logi

Gróður í Öskjuhlíð, Kristbjörn Egilsson

Fróðleikur, lesið- leikið-lært, Þorbjörg Jónsdóttir

Rökstuðningur dómnefndar (PDF 284 KB)

Vinningstillögur (PDF 5,65 MB)