Fellaskóli fagnar fertugsafmæli
Mikil gleði ríkti í Fellaskóla þegar haldið var upp á fertugsafmæli skólans í fallegu haustveðri. Nemendur, sem eiga uppruna í meira en tuttugu löndum, skemmtu gestum með söng á ýmsum tungumálum og dansi. Fulltrúi eldri nemenda, rithöfundurinn Sjón, las upp ljóð og afhjúpað var stórfallegt vegglistaverk sem nemendur gerðu á skólalóðinni í tilefni afmælisins. Óskir allra nemenda um skólann sinn og framtíðina var komið fyrir í blýhólk sem elstu kennarar skólans felldu síðan inn í vegglistaverkið. Skólinn fékk styrk frá Sumargjöf, fyrirtækjum og Reykjavíkurborg til að gera þetta listaverk sem unnið var undir stjórn Dagnýjar Bjarnadóttur landslagsarkitekts sem hannaði nýju skólalóðina við Fellaskóla, Chris Foster og Grétu S. Guðmundsdóttur myndmenntakennara skólans. Stuðst var við hugmyndir nemenda, foreldra og starfsmannabið gerð verksins á þann hátt að sem flestir ættu hlutdeild í listaverkinu. Þannig felldu allir nemendur sinn óskastein inn í verkið sem geymir líka sameiginlega óskasteina og bergkristalla.
Í Fellaskóla stunda nú um 320 nemendur nám, en við stofnun skólans, þegar Fellahverfið var að byggjast upp, voru þeir helmingi fleiri og fjölgaði þeim hratt næstu árin. Á árunum 1975-1977 voru nemendur flestir eða 1.480. Á þeim fjörtíu árum sem liðin eru frá stofnun skólans hefur hann gengið í gegnum miklar breytingar. Þar dafnar nú fjölmenningarlegt skólasamfélag þar sem nemendur tala fjölmörg tungumál. Þar mætast ólíkir einstaklingar, menningarheimar og siðir. Skólastjóri er Kristín Jóhannesdóttir. Hún sagði í ávarpi sínu til nemenda og gesta að fjölmenningarlegur fjölbreytileiki væri helsti styrkur Fellaskóla, hann auðgaði skólastarfið og væri áhersla lögð á að virðing væri borin fyrir uppruna og menningu nemenda.
Í tilefni fertugsafmælisins hefur verið sett upp sýning á verkefnum nemenda sem tengjast sögu skólans.