Vesturgarður í Grænu skrefin

Þjónustumiðstöð Vesturbæjar – Vesturgarður tekur fyrsta skrefið

Vesturgarður hefur síðustu vikurnar unnið að því að stíga fyrsta skrefið í Grænu skrefunum sem Reykjavíkurborg hvetur alla til þess að gera. Eftir að starfsmenn höfðu ákveðið að sameinast um að gera vinnustaðinn vistvænni var drifið í því að fara í þá vinnu sem snýr að því að fá viðurkenninguna fyrir fyrsta skrefið. Starfsmenn settu sér markmið um að ná þessu skrefi 5. október 2012 og að sjálfsögðu gekk það eftir. Allir lögðust á eitt um að vinna saman að þessu verkefni og það marg sannast að þegar margar hendur vinna saman, gengur verkefnið vel fyrir sig sem það gerði í þessu tilefelli.

Hér má sjá Sigþrúði Erlu framkvæmdastjóra Vesturgarðs taka við viðurkenningunni úr höndum Hrannar Hrafnsdóttur sem starfar hjá Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Starfsmenn Vesturgarðs hafa sett sér markmið fyrir skref tvö, en það er að ná því í desember nk.

Þess má geta að samhliða þessu tók Vesturgarður land að sér í Heiðmörk og ætlar einmitt í tilefni dagsins að fara og vígja staðinn í Heiðmörk og planta nokkrum trjám um leið.