Lady Gaga meðal þeirra sem fær viðurkenningu úr LENNONONO friðarsjóðnum þann 9. október
Þann 9. október 2012, mun Yoko Ono veita fimm alþjóðlegum friðarsinnum viðurkenningu úr LENNONONO-friðarsjóðnum / LENNONONO GRANT FOR PEACE. Er viðurkenningin veitt annað hvert ár í Reykjavík og er þetta í fjórða sinn sem athöfnin fer fram hér á landi. Afhendingin fer fram í Hörpu og hefst kl. 14.00.
Handhafar viðurkenningarinnar árið 2012 eru:
LADY GAGA
RACHEL CORRIE
JOHN PERKINS
CHRISTOPHER HITCHENS
PUSSY RIOT
LADY GAGA
„LADY GAGA er einn mikilvægasti listamaður okkar tima“, segir Yoko Ono. „Hún er ekki aðeins listamaður heldur einnig baráttukona sem notar list sína sem miðil til að efla samskipti og koma boðskap sínum á framfæri við heiminn. Hún fær viðurkenningu fyrir baráttu sína og hvernig platan hennar „Born This Way“ hefur lagt sitt af mörkum til að breyta þankagangi í heiminum og hvernig við tökumst á við framtíðina sem þegar er hafin.“
Lady Gaga mun taka við Lennon Ono friðarverðlaunum í eigin persónu en einnig framlagi til góðgerðarmála sem hún mun veita til stuðningssamtaka Elton John fyrir alnæmissjúka og HIV smitaða.
RACHEL CORRIE
RACHEL CORRIE, 23 ára friðarsinni frá Olympia, Washington, lést þegar ísraelsk jarðýta ók yfir hana þann 16. mars 2003, er hún reyndi með friðsamlegum hætti að stöðva eyðileggingu ísraelska hersins á heimili palestínskrar fjölskyldu á Gaza. Í anda Rachel Corrie og baráttu hennar fyrir málstað Palestínu hafa samtök, sem stofnuð voru í kringum hugsjónir hennar, Rachel Corrie Foundation for Peace and Justice, haldið áfram á þeirri braut sem hún hóf að feta. Samtökin hafa unnið að mannúðarmálum og fræðsluverkefnum sem mynda tengsl milli fólks, stuðla að auknum skilningi og virðingu og fagna fjölbreytileikanum í allri sinni dýrð. Samtökin hvetja og styðja grasrótasamtök í viðleitni þeirra til hverskonar friðarumleitana, baráttu fyrir mannréttindum og réttlæti á öllum sviðum, sem að þeirra mati er grundvallarforsenda friðar í heiminum.
Foreldrar Rachel Corrie munu taka við viðurkenningunni fyrir hennar hönd.
JOHN PERKINS
Rithöfundurinn og friðarsinninn JOHN PERKINS dró að sér athygli heimsins með útgáfu bókarinnar Confessions of an Economic Hit Man sem tróndi á toppi metsölulistans í New York Times í meira en heilt ár. Bókin ljóstrar á magnaðan hátt upp um hina alþjóðlegu spillingu sem hann segir soga að sér auðlindir vanmáttugra þjóða. John Perkins er stofnandi félagasamtakanna Dream Change and The Pachamama Alliance, sem hafa helgað sig umbótum á fjölmörgum sviðum. Perkins hefur einnig flutt fyrirlestra um skyld efni við háskóla í fjórum heimsálfum og undirbýr nú útgáfu nýrrar bókar.
John Perkins mun sjálfur taka á móti viðurkenningunni.
CHRISTOPHER HITCHENS
CHRISTOPHER HITCHENS var rithöfundur og blaðamaður. Ferill hans spannar meira en 40 ár en hann skrifaði fyrir marga áhrifaríka fréttamiðla s.s. The Atlantic, The Nation, Vanity Fair, The Daily Mirror og marga fleiri. Hann var höfundur tólf bóka og greinasafna auk þess sem hann var tilefndur til National Book Award árið 2007 fyrir metsölubókina sína God is not Great þar sem hann setti fram hugmyndir sínar um skipulagða trúarstarfsemi sem ,,rót alls ills í heiminum”. Hitchens tók reglulega fyrir viðfangsefni eins og trúmál, stríðsrekstur, þekkta einstaklinga og alþjóðastjórnmál, var þekktur fyrir ögrandi stíl og varð því afar umdeildur maður.
Carol Blue Hitchens, ekkja Christopher Hitchens, mun taka við viðurkenningunni fyrir hans hönd.
PUSSY RIOT
Róttæku femínistarnir í pönkhljómseitinni PUSSY RIOT stigu fram á alþjóðasviðið í febrúar 2012 með ögrandi framkomu sinni í Cathedral of Christ the Saviour í Moskvu. Í gjörningi við altari kirkjunnar fóru þær með pönkbæn til Maríu guðsmóður og báðu um lausn Rússlands undan valdi Vladimir Putins, forseta landsins. Eftir að myndband af gjörningnum var birt á netinu voru þrír meðlimir hljómsveitarinnar handteknir og ákærðir fyrir að stofna til óeirða. Stúlkurnar voru nýlega fundnar sekar eftir margra mánaða fangelsisvist og hafa verið dæmdar í tveggja ára fangelsi. Niðurstaða dómsins hefur vakið hörð viðbrögð í alþjóðasamfélaginu og hefur opinber stefna Rússlands er varðar frelsi til orða og athafna verið mjög véfengd. Pussy Riot á vísan stuðning fjölmargra friðarsinna í heiminum sem margir hverjir hafa mótmælt því óréttlæti sem þær hafa þurft að þola.
Yoko Ono veitti - í samstarfi við Amnesty International - Pussy Riot viðurkenninguna í New York þann 21.september síðastliðinn í von um að þær verði leystar úr haldi sem fyrst.
FRIÐARSÚLAN / IMAGINE PEACE TOWER Í VIÐEY
Árleg tendrun Friðarsúlunnar / IMAGINE PEACE TOWER fer fram þann 9. október í Viðey klukkan 20.00 að staðartíma. Yoko Ono býður heimsbyggðinni að sameinast með henni í ljósi og friði í gegnum tendrun Friðarsúlunnar og heiðra með því minningu friðarsinna í fortíð, nútíð og framtíð. Hún biður íbúa heimsins að sameinast og leifa krafti ljóssins að tjá sameiginlega ósk þeirra um frið og samkennd um heim allan.
Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá tendrun Friðarsúlunnar á www.imaginepeacetower.com.
Nánari upplýsingar um ferjusiglingar er að finna á www.videy.com og www.elding.is.