Miðborgin hluti af menningararfi þjóðanna

Í spænsku tímariti um arkítektúr, Márgenes Arqitectura, er lagt til að miðborg Reykjavíkur verði sett á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Tímaritið er gefið út af spænskum arkitektum og er síðasta tölublað helgað höfuðborgum Norðurlanda.

Í leiðara tímaritsins er eingöngu fjallað um Reykjavík og segir þar m.a. að miðborgin sé einstök perla í húsagerðarlist og sem borgarkjarni, björt og sérviskuleg, einstök í allri sinni gerð. „Það sem virkar í Reykjavík eru sérkennin í allri borgargerðinni. Reykjavík 101 er t.d sögulegt hverfi um leið og það er nútímalegt og gegnir því sama hlutverki í borginni og fornir miðbæir sem varðveittir hafa verið í Evrópu. Þetta, segja höfundar,  fær okkur til að íhuga afstætt mat á sögulegu gildi og þjóðararfinum. Þannig gætum við slegið því föstu að slíkt mat á þjóðararfi ætti að fara fram, ekki vegna fornra gilda, heldur vegna blæbrigða staðarins. Með frekari útfærslu gæti það staðfest fyrir okkur menningarleg verðmæti húsanna og bæjarskipulagsins sem raunverulegt dæmi um einstakt tímabil.“

Einnig segir í leiðaranum að ef matsviðmiðum um hugtakið þjóðararf verði breytt gangi það betur upp í mati á gildi miðborgarinnar í Reykjavík, einkum ef almennu samþykki um táknrænt gildi einhverra bygginga verði náð. Leiðaranum lýkur svo með þeim orðum að vegna allra þessara raka sé ekki úr vegi að hugsa sér 101 Reykjavík sem hluta af menningararfi þjóðanna.

Sjá leiðarann.