Menntamiðja – ný brú í skóla- og frístundastarfi

Nýlega var undirrituð viljayfirlýsing um samráðsvettvang um skóla- og frístundastarf. Hann mun starfa undir heitinu MenntaMiðja og er samstarfsverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélga, Kennarasambands Íslands, Menntavísindasviðs HÍ, Hug- og félagsvísindasvið HA og skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

Markmið MenntaMiðju eru að byggja brýr milli aðila innan skólasamfélags og fagfólks í frístundastarfi og vera vettvangur um framþróun í starfinu. MenntaMiðju verður eins konar umgjörð utan um grasrótarstarf sem sprottið hefur upp í tengslum við starf sem unnið hefur verið á Tungumálatorgi, Sérkennslutorgi og Náttúrutorgi og víðar. Þessi fagtorg og fleiri um afmörkuð málefni eru grunneiningar MenntaMiðjunnar og þar fer fram hið raunverulega starf, sem getur verið með ólíkum hætti milli torga. Viðfangsefni torganna geta snúist um samstarf og símenntun, upplýsingamiðlun, námsefni, formlegt og óformlegt nám, kennsluaðferðir, ráðgjöf, starfsþróun og fleira. Með MenntaMiðju er lögð áhersla á tengingar milli stofnana , milli skóla og að mynda tengingar við fræðasamfélag með gagnkvæman ávinning að leiðarljósi.

Sjá heimasíðu MenntaMiðju.