Málþing um skil skólastiga
Hinn 13. nóvember nk.stendur skóla- og frístundsvið Reykjavíkur ásamt Menntavísindasviði HÍ fyrir málþingi um skila skólastiga, frá leikskóla til grunnskóla og grunnskóla til framhaldsskóla. Málþingið er haldið í tilefni af útgáfu bókar Gerðar G. Óskarsdóttur um þetta efni. Það er haldið í Norðlingaskóla, kl. 14.00 - 17.00. Hátt á þriðja hundrað manns skráðu sig á málþingið en skráningu er nú lokið.
Dagskrá Málþingsins:
14.00 Setning– Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur.
Söngur barna af leikskólanum Rauðhóli.
14.15 Gerður G. Óskarsdóttir: Hugmyndin að bókinni, niðurstöður og hugsanleg nýting þeirra.
14.45 Viðbrögð við bókinni:
- Ólöf Helga Pálmadóttir, leikskólastjóri Sunnuási.
- Árný Inga Pálsdóttir, skólastjóri Kelduskóla
15.15 Kaffihlé
15.45 Viðbrögð við bókinni:
- Hjördís Þorgeirsdóttir, rektor MS.
16.00 Pallborðsumræður - Stjórnandi Jón Torfi Jónasson, forseti Menntavísindasviðs HÍ.
- Málþingsslit – Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur.
Málþingsstjóri er Ingvar Sigurgeirsson, prófessor HÍ.
Um bókina Skil skólastiga - frá leikskóla til grunnskóla OG grunnskóla til framhaldsskóla
Tengsl skólastiga, sveigjanleiki á skilum þeirra og samfella í námi hefur talsvert verið til umræðu hér á landi en mjög hefur skort á upplýsingar um efnið. Úr því er bætt með þessari bók.
Í Skilum skólastiga dregur höfundur upp ítarlega mynd af starfi á síðasta ári í leikskóla og 1. bekk grunnskóla annars vegar og 10. bekk grunnskóla og fyrsta ári í framhaldsskóla hins vegar. Varpað er ljósi á mun og samfellu í umgjörð starfsins og starfsháttum og tengslin við næsta skólastig. Lýsingarnar byggjast á vettvangsathugunum í 30 skólum, spurningakönnunum og yfir 50 viðtölum við nemendur og kennara.
Höfundur færir rök fyrir því að starfshættir séu með mjög líku sniði í skólum á sama skólastigi og samfella milli skólastiga talsverð þó að rof hafi komið fram og þá stundum það sem höfundur nefnir afturhverft rof. Því sé breytinga og jafnvel mikilla umbóta þörf á vissum sviðum en tillögur í þá veru má finna í lokakafla bókarinnar ásamt hugmyndum að frekari rannsóknum.
Skil skólastiga er hugsuð sem veganesti fyrir kennara, stjórnendur og aðra þá sem móta stefnuna í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Hún er jafnframt samin með fræðimenn á sviði menntamála og kennaranema í huga.
Gerður G. Óskarsdóttir hefur verið kennari á grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastigi, skólastjóri, skólameistari, kennslustjóri í kennaranámi framhaldsskólakennara við Háskóla Íslands, ráðunautur menntamálaráðherra og yfirmaður leik- og grunnskóla hjá Reykjavíkurborg. Hún er nú forstöðumaður Rannsóknastofu um þróun skólastarfs á Menntavísindasviði HÍ. Gerður lauk doktorsprófi í menntunarfræði frá Kaliforníuháskóla í Berkeley árið 1994 og hefur stundað fræðistörf og rannsóknir um árabil.