Vesturbugt – Gamla Höfnin, lýsing

Lýsing vegna deiliskipulags - lögð fram sbr. 1.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Lýsing þessi er hluti vinnu við gerð deiliskipulags á Vesturbugt sem nær frá Ánanaustum í vestri og að Slippnum í austri. Hverfið afmarkast af syðri kanti Mýrargötu til suðurs og höfninni til norðurs og er reiturinn alls um 43 þúsund m² að stærð. Samkvæmt aðalskipulagi er landnotkun á reitnum skilgreind sem blönduð byggð.

Unnið hefur verið rammaskipulag fyrir gömlu höfnina í Reykjavík. Rammaskipulagið byggir á vinningstillögu arkitektastofunnar Graeme Massie Architects sem bar sigur úr býtum í opinni hugmyndasamkeppni um Gömlu höfnina sem lauk í desember 2009.

Skoða lýsingu (PDF).