Meir’ en að segja það!
Málþing um móðurmálskennslu verður haldið föstudaginn 9. nóvember í Gerðubergi kl. 13.00 - 17.00. Að því standa Borgarbókasafn, Rannsóknarstofa í Fjölmenningu við HÍ, Samtökin Móðurmál, skóla og frístundasvið Reykjavíkurborgar og Tungumálatorg.
Á þinginu munu nemendur, foreldrar, sérfræðingar, kennarar og annað áhugafólk um móðurmálskennslu ræða saman og velta fyrir sér mikilvægi móðurmáls í menntun tvítyngdra og fjöltyngdra barna á Íslandi. Í lok þingsins gefst þátttakendum tækifæri til að kynnast lifandi tungumálum. Boðið verður upp á táknmálstúlkun á þinginu.
Málþingið er skipulagt í tengslum við Hringþing um menntun innflytjenda sem haldið var af Innflytjendaráði o.fl. í september sl. Tilgangur málþingsins er að varpa ljósi á stöðu móðurmálsmenntunar á Íslandi og huga að næstu skrefum í móðurmálskennslu tví- og fjöltyngdra barna sem eftirsóknarvert fyrir samfélagið allt. Málþingið er öllum opið og þátttökugjald er 1.000 kr.
Sjá skráningarsíðu.