Grunnskólarnir fá rafbækur að gjöf

Útgáfufyrirtækið Emma.is hefur í samstarfi við rithöfundinn Þorgrím Þráinsson lagt sitt lóð á vogaskálarnar til að hvetja til aukins lesturs barna og unglinga. Það afhenti í dag grunnskólum Reykjavíkur átta bækur Þorgríms á rafbókaformi svo nemendur geti án endurgjalds sótt þær í rafrænu formi og lesið, hvort heldur á smátölvum, snjallsímum, í rafbókinni Kindle eða öðrum tölvum.  

Afhending gjafarinnar fór fram í Vogaskóla þar sem nemendur á unglingastigi eru orðnir vanir lesbrettum. Þannig fengu allir 10. bekkingar kindle-rafbretti til afnota í fyrra og þykir sýnt að það hafi aukið lestur þeirra umtalsvert.  9. bekkingar í Vogaskóla fá einnig slíka rafbók á næstu vikum og mun hún fylgja þeim til loka grunnskólans.



Í sumar var unnið að því að vegum Emmu að færa eldri bækur Þorgríms Þráinssonar á stafrænt form og fengu grunnskólarnir eftirtaldar bækur að gjöf: Með fiðring í tánum (frá 1998), Bak við bláu augun (1992), Lalli ljósastaur (1992), Spor í myrkri (1993), Sex augnablik (1995), Svalasta 7an (2003), Undir 4 augu (2004) og Litla rauða músins (2008). Bækurnar höfða til breiðs hóps lesenda allt frá 1. til 10.bekkjar.