Heldri borgarar heimsækja Norðlingaskóla

Árið 2012 er tileinkað öldruðum í Evrópu og var 1. október síðastliðinn alþjóðadagur eldri borgara. Af þessu tilefni leitaði landssamband eldri borgara til mennta- og menningarmálaráðuneytisins og óskað eftir því að athygli grunnskóla yrði vakin á Evrópuárinu og þá sérstaklega alþjóðadeginum. Skólar voru hvattir til að bjóða eldri borgara velkomna í heimsókn.



Norðlingaskóli tók þessari áskorun og þann 1. október fóru nemendur með bréf heim til allar heldri borgara í hverfinu og buðu þeim að heimsækja skólann. Miðvikudaginn 10. október kom síðan vaskur hópur heldri borgara í heimsókn. Sif Vígþórsdóttir skólastýra tók á móti hópnum, bauð upp á kaffi og kynnti þeim skólastarfið sem nú fer fram í nýju og glæsilegu skólahúsi. Þá leitaði hún eftir frekari samvinnu milli skólans og heldri borgara í Norðlingaholti á komandi árum. Margir létu þau orð falla að þeir gætu bara vel hugsað sér að setjast aftur á skólabekk í svona fallegum og nýjum skóla.

Í Norðlingaskóla er lögð áhersla á að skólinn sé samfélagslegur kjarni í hverfinu og að þangað séu allir íbúar velkomnir. Það er jafnframt stefna skólans að leggja sitt af mörkum til að brúa kynslóðabil og stefnir skólinn m.a. að því að opna bókasafn í samvinnu við Borgarbókasafn Reykjavíkur. Þá eru einnig uppi hugmyndir um lítið kaffihorn fyrir heldri borgar sem vilja koma í heimsókn í skólann.