Norðmenn miðla raunvísindum á nýstárlegan hátt
Norðmennirnir Ivar Nakken og Magne Hognestad hafa á undanförnum vikum farið í grunnskóla borgarinnar og kennt raunvísindi með nýstárlegum hætti. Í morgun fengu nemendur í Melaskóla sýningu á eðliseiginleikum vatns og niturs í svokölluðu efnafræðieldhúsi. Í minni hópum fengu nemendur líka að reyna sig í ýmsum tilraunum, s.s. vasaljósasmíði og að byggja bíla sem knúnir eru áfram af þyngdaraflinu. Augljóst var að Melaskólanemendur höfðu gaman af heimsókninni og vildu ólmir fá að gera tilraunir í efnafræðieldhúsinu.
Þeir Ivar og Magne koma frá vísindasafninu Jærmuseet í Noregi og hafa þeir m.a. haldið námskeið fyrir grunnskólakennara í borginni og kynnt kennsluaðferðir sínar þar sem skemmtun og gagnvirkni eru lykilatriði. Þeir félagar hafa áralanga reynslu af raunvísindafræðslu fyrir nemendur á öllum aldri og Ivar hefur m.a. rekið vísindasirkus frá árinu 1996.
Heimsókn þeirra félaga Ivars og Magne lýkur með Vísindasýningum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum nú á laugardag 13. október klukkan 12.00 og 14.00, en þeir fengu styrk frá norsk-íslenska menningarsjóðnum til að miðla þekkingu sinni til barna og fullorðinna hér á landi.