Orðið er frjálst um nýja stjórnarskrá - persónukjör

Síðasti fundur í fundaröðinni „Opinn hádegishljóðnemi“ var haldinn í Ráðhúsinu í dag. Það var Eiríkur Bergmann sem batt enda á lýðræðisviku með að fjalla um þjóðaratkvæðagreiðslur. Um var að ræða fræðslufundi um þær fimm efnisspurningar sem kosið verður um í  ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá á laugardaginn 20. október. Fundirnir hafa verið vel sóttir og lifandi umræða átt sér stað um efnisspurningarnar sem hægt verður að kjósa um á laugardaginn.