Samkeppni um opnunaratriði Vetrarhátíðar í Reykjavík 2013
Höfuðborgarstofa og Orkusalan í samstarfi við Hönnunarmiðstöð standa fyrir samkeppni um opnunaratriði Vetrarhátíðar 2013. Atriðið sem markar upphaf hátíðarinnar, verður afhjúpað fimmtudagskvöldið 7. febrúar næstkomandi á óvæntum en fjölförnum stað í borgarrýminu.
Markmið samkeppninnar er að auka lífsgæði borgarbúa með því að styrkja Reykjavík sem krafmikla og skapandi borg sem einkennist af lifandi og spennandi umhverfi. Þar kemur að mikilvægi Vetrarhátíðar í Reykjavík en opnunaratriði hennar á fjölförnum en óvæntum stað í borginni er liður í því að auka ánægju og upplifun borgarbúa í vetrarmyrkrinu.
Samkeppnin í ár er opin öllum hönnuðum, arkítektum, myndlistamönnum, tónlistarmönnum, ljósamönnum, tölvunarfræðingum eða öðrum þeim sem vinna með rafmagn og list í einhverju formi. Hvatt er til samstarfs milli ólíkra aðila og/eða listgreina. Kostur er ef verkið felur í sér einhverskonar gagnvirkni sem bíður upp á þátttöku borgaranna.
Sigurvegarinn hlýtur 400.000 kr. að launum auk þess sem gerður verður við hann samningur um framkvæmd vinningstillögunnar.
Frestur til þátttöku rennur út föstudaginn 16. nóvember 2012. Nánari upplýsingar um samkeppnina má finna á vefsíðu Hönnunarmiðstöðvar www.honnunarmidstod.is.
Vetrarhátíð verður að þessu sinni haldin dagana 7. - 10. febrúar 2013 eða frá fimmtudegi til sunnudags. Yfirskrift hátíðarinnar er Magnað Myrkur og endurspeglar það anda hennar sem er vetrarmyrkrið og hvernig fjölbreyttir viðburðir hátíðarinnar lýsa það upp. Fastir liðir Vetrarhátíðar eru Safnanótt, Heimsdagur barna og Sundlauganótt auk þess sem boðið er upp á litskrúðuga og skemmtilega almenna dagskrá.
Margir muna eftir vinningsverki samkeppninnar sem haldin var fyrir Vetrarhátíð 2012 þegar arkitektinn Marcos Zotes opnaði hátíðina með innsetningunni Rafmögnuð náttúra sem varpað var á framhlið Hallgrímskirkju með aðstoð gríðarstórra skjávarpa er breytti ásýnd byggingarinnar og skapaði kraftmikla sjónræna upplifun við lifandi tónflutning hljómsveitarinnar For a Minor Reflection. Smellið hér til til þess að skoða viðtal við höfundinn og myndband af verkinu.