Íþróttafjör hjá leikskólum í Vesturbæ
Fyrir nokkrum dögum síðan komu saman þrír leikskólar í Vesturbæ í íþróttasal KR- heimilisins til þess eins að skemmta sér saman og mögulega tengja saman starfsemi leikskóla í Vesturbæ. Þetta hefur ekki verið gert áður með þessum hætti, en það var leikskólinn Ægisborg sem bauð Hagaborg og Vesturborg í heimsókn í tíma sem þeir hafa haft um nokkurt skeið. Þarna voru komnir saman tæplega 60 krakkar úr elstu árgöngum leikskólanna og var ekki að sjá á öðru en allir hefðu mjög gaman. Ægisborg með Ásmund leikskólakennara í fararbroddi skipulagði þennan viðburð og eiga þeir þakkir skilið fyrir gott framtak og frumkvæði, en Þjónustumiðstöð Vesturgraðs kom einnig að skipulagningu þessa viðburðar.
Við hjá Þjónustumiðstöð Vesturbæjar skorum á aðra leikskóla að skoða hvort þeir geti gert slíkt hið sama og geta þá verið í sambandi við íþrótta- og tómstundafulltrúa Vesturgarðs ef þeir óska eftir aðstoð við skipulagningu og framkvæmd.