Skipulag atvinnuátaksmála bætt hjá Reykjavíkurborg
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær tillögu borgarstjóra að breyttu skipulagi atvinnuátaksmála hjá Reykjavíkurborg. Stofnaður verður stýrihópur um sérstök atvinnumál sem skipaður verður kjörnum fulltrúum. Hópnum til ráðgjafar verða embættismenn og starfsmenn borgarinnar sem vinna að málaflokknum.
Borgarráð samþykkti ennfremur að stofnuð verði ný atvinnumáladeild sem mun heyra undir skrifstofu borgarstjóra. Atvinnumáladeildin mun halda utan um verkefni Atvinnutorgs og atvinnuátaksverkefni eins og Vinnandi veg. Báðar þessar samþykktir miða að því að gera atvinnuátaksverkefni sem borgin stendur að einfaldari í framkvæmd. Í greinargerð sem fylgir tillögunni kemur fram að Reykjavíkurborg verði betur í stakk búin til að takast á við þau verkefni sem framundan eru á sviði atvinnumála. „Samræmt verklag, sameining og einföldun á utanumhaldi sérstakra atvinnumála hjá borginni er mikilvæg forsenda fyrir heildstæðri og einstaklingsmiðaðri nálgun gagnvart atvinnuleitendum,“ segir í greinargerðinni.
Markmiðið er að borgin geti boðið langtímaatvinnulausum störf og stutt við þá í þeirri vegferð að fóta sig á ný á vinnumarkaði. Deildin mun einnig sjá um ráðgjöf og námskeiðahald fyrir atvinnuleitendur. Með stofnun hennar á að tryggja enn frekar en nú er að fólk með fötlun, fólk af erlendum uppruna og langtímaatvinnulausir, fái tækifæri til atvinnuþátttöku á vegum Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg hefur sinnt atvinnuátaksverkefnum af krafti en borgin lagði fram áætlanir um að ráða í 350 störf sem tengd voru átaksverkefninu Vinnandi vegur sem hófst í mars á þessu ári. Í ágúst höfðu 500 manns verið boðaðir í viðtal hjá atvinnuráðgjafa og af þeim höfðu 221 þegið starf en 215 afþakkað störf hjá borginni eða afskráð sig af atvinnuleysisskrá. Vinna við verkefnið stendur enn yfir hjá Reykjavíkurborg. Þá stóð Reykjavíkurborg að því að stofna Atvinnutorg fyrir ungt fólk og hefur það gengið vonum framar en áætlað er að 250 ungmennum verði boðin tímabundin störf eða starfsþjálfun á árinu.