Laufásborg býður í sextugsafmæli
Börn af leikskólanum Laufásborg, sem Hjallastefnan rekur, komu á fund borgarstjóra á dögunum og buðu honum í sextugsafmæli skólans sem haldið verður upp á þann 25. október. Þau afhentu honum rauðan fána með boðskorti svo hann gleymdi því örugglega ekki að koma með í skrúðgöngu á afmælisdaginn.
Laufásborg er sögufrægur leikskóli enda hefur hann starfað hvað lengst allra í borginni. Barnavinafélagið Sumargjöf hóf upphaflega rekstur barnaheimilis í Laufásborg árið 1952 og rak það þar til Reykjavíkurborg tók yfir reksturinn á 8. áratugnum. Hann var síðan borgarrekinn fram til ársins 2006 er Hjallastefnan tók við rekstrinum.
Haldið verður upp á afmæli Laufásborgar á sjálfan afmælisdaginn, 25. október, frá klukkan 10.00 - 14.00 og verður heitt á könnunni fyrir alla sem vilja koma í heimsókn.