Farsæld - baráttan gegn fátækt á Íslandi
Hjálparstofnun kirkjunnar og Rauði krossinn kynntu skýrslu, 17. október sl., sem unnin var um fátækt á Íslandi. Velferðarsvið átti aðild að samstarfshópi sem vann skýrsluna en þar er að finna markvissar tillögur til að auka farsæld í samfélaginu og útrýma langvarandi fátækt.
Þar líta dagsins ljós mótaðar hugmyndir margra ólíkra sérfræðinga í málefnum fátækra. Starfshópur vann úr hugmyndunum og bera nú niðurstöður sínar fram fyrir alþjóð í þeirri von að samstilltur margradda kór geti hreyft við þjóðfélaginu.
Skýrslan bendir á nokkrar tilgreindar fátæktargildrur sem eru í samfélaginu og komið er með beinar tillögur að lausnum. Hvatt er til aukinnar samhæfingar og breytingatillögur að ýmsum þáttum velferðarkerfis, atvinnulífs og félagasamtaka. Jafnframt eru þau sjónarmið kynnt að hinn óskráði samfélagssáttmáli skuli fela í sér mannréttindi, samhliða kröfunni um ábyrgð hvers einstaklings, um leið og samfélagið tryggir tækifæri til þátttöku. Stuðningur samfélagsins verði ekki í formi ölmusu heldur stuðli að mannlegri reisn.