179 einstaklingar utangarðs í borginni
Í nýrri skýrslu frá velferðarsviði borgarinnar kemur fram að utangarðsfólk er almennt ánægt með þá þjónustu sem fyrir hendi er þó flestum finnist vanta sólarhringsúrrræði. Einnig er búið að kortleggja fjölda og hagi utangarðsfólks og þar teljast 179 einstaklingar utangarðs og/eða heimilislausir í borginni*.
Karlar voru í meirihluta eða 62,56%. Flestir voru á aldrinum 21-30 ára eða 24% og 22,3% voru á aldrinum 51 - 60 ára. Dreifing á aldrinum 31 - 40 og 41 - 50 var nokkuð jöfn eða 20,1% og 19,6%. Yngsti útigangsmaðurinn var 18 ára og sá elsti 75 ára. Þeir sem voru sagðir vera heimilislausir og/eða utangarðs í meira en tvö ár voru 38% af heildarfjölda, þar af voru 29 búsettir í langtímabúsetuúrræði. Þrátt fyrir að sumir fái langtímabúsetuúrræði falla þessir einstaklingar undir utangarðsfólk. Áfengisvandi (62,6%) og annar vímuefnavandi (61,5%) var talin helsta orsök þess að viðkomandi einstaklingar voru utangarðs og/eða heimilislausir, hvort heldur konur eða karlar.
Stofnanir og félagasamtök sem tóku þátt í rannsókninni höfðu veitt fjölbreytta þjónustu til þessara 179 einstaklinga. Þeir höfðu líka leitað til ýmissa annarra stofnana og félagasamtaka eftir þjónustu og stuðningi.
Stefna velferðarsviðs Reykjavíkurborgar í málefnum utangarðsfólks er nú í endurskoðun og er starfshópur að móta stefnu til næstu fjögurra ára.
Kortlagning á þörfum og vilja utangarðsfólks í Reykjavík.
Kortlagning á fjölda og högum utangarðsfólks í Reykjavík.
*Í rannsókninni var stuðst við skilgreiningu félagsmálaráðuneytisins frá árinu 2005 á heimilisleysi og sex af þrettán þáttum European typology of homelessness and housing exclusion (ETHOS) skilgreiningarinnar á heimilisleysi.