Malbikað á Bústaðavegi

Þriðjudaginn 23. október  verður unnið að malbiksviðgerðum á Bústaðavegi með tilheyrandi lokunum og þrengingum frá klukkan 9.00 til 16.00 á akrein með akstursstefnu til vesturs, í átt að miðborginni, frá Tunguvegi að Ásgarði. Teknir verða fyrir stuttir kaflar í einu og er gert ráð fyrir tveimur lokunum yfir daginn  annars vegar með hjáleið um Tunguveg, Sogaveg og Réttarholtsveg og hins vegar með hjáleið um Ásgarð.

Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflunum sem af framkvæmdum kann að stafa og eru jafnframt beðnir um að sýna aðgát við framkvæmdasvæði og virða hraðatakmarkanir sem og merktar hjáleiðir.