Sextugsafmæli í Laufásborg
Haldið var upp á sextugsafmæli Laufásborgar með kökum og skrúðgöngu í dag. Opið hús var í Hamingjuhöllinni eins og Laufásborg er stundum kölluð og komu margir góðir gestir, m.a. Sturla Friðriksson sem sleit barnsskónum í húsinu. Hann er sonur Friðriks Jónssonar, annars þeirra Sturlubræðra sem reistu húsið af miklum myndarskap. Þá kom Sigríður Snævar í heimsókn, en Valborg móðir hennar var fyrrverandi skólastjóri Fóstruskólans.
Þegar Laufásborg hóf starfsemi 25. október árið 1952 var þar rými fyrir 150 börn og þótti vel í lagt enda húsið stórt. Sumargjöf rak þar barnaheimili fram á áttunda áratuginn þegar borgin tók við rekstrinum. Í fyrstu var rekin vöggustofa, dagheimili og leikskóli í húsinu og var skólinn opinn sex daga vikunnar. Saga skólans er nátengd sögu reykvískra kvenna og endurspeglar rekstur hans þær miklu breytingar sem orðið hafa á atvinnuþátttöku kvenna síðustu hálfa öldina. Fyrsti leikskólastjórinn í Laufásborg var Þórhildur Ólafsdóttir
Sjá afmælisrit Laufásborgarsem gefið var út í tilefni þessara merku tímamóta.