BIN-hópurinn afhendir undirskriftir gegn hóteli í Kvosinni
BIN-hópurinn (Björgum Ingólfstorgi og Nasa) afhenti borgarstjóra og fleirum rúmlega fimmtán þúsund undirskriftir sem safnað hefur verið gegn fyrirætluðum hótelframkvæmdum við Ingólfstorg, Fógetagarð og Austurvöll. Athöfnin fór fram á veitingastaðnum UNO í Fálkahúsinu við Ingólfstorg síðdegis í dag.
Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, afhenti borgarstjóra áskorun fyrir hönd hópsins og sagði meðal annars „Við skorum á borgarstjóra að koma í veg fyrir þessar nýbyggingar og leyfa gömlu húsunum við Ingólfstorg að standa með reisn á sama hátt og gömlu húsin við Vesturgötu og Aðalstræti“. Að því búnu afhenti Páll Óskar Jóni Gnarr tölvukubb með undirskriftunum. Ennfremur voru undirskriftirnar afhentar Ragnheiði Ríkharðsdóttur, varaforseta Alþingis, og Páli Bjarnasyni, formanni Húsafriðunarnefndar.
Borgarstjóri sagði, þegar hann tók við undirskriftalistunum, að hann myndi beita sér fyrir farsælli lausn á málinu.