Innköllun á súkkulaðiböku vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds

Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hefur fengið upplýsingar um að Gott í kroppinn ehf., Reykjanesbæ, hafi, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, ákveðið að innkalla af markaði eftirfarandi vöru þar sem hún inniheldur ómerktan ofnæmis- og óþolsvald (lesitín úr soja). 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki:  Gott í kroppinn.

Vöruheiti:  Frönsk lúxusbaka-Súkkulaðisæla.  

Framleiðandi:  Gott i kroppinn ehf., Valhallarbraut 743, 235 Reykjanesbæ.

Nettóþyngd:  480 g.

Umbúðir:  Plastöskjur.

Strikanúmer:  7350012130008.

Dreifing:  Verslanir Hagkaupa í Spönginni, Skeifunni og Smáralind.

Soja og afurðir úr því eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla. Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir soja og afurðum úr því.  Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir soja og afurðum úr því eru beðnir um að farga henni eða skila til framleiðanda gegn bótum.  Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristjánsson hjá Gott í kroppinn ehf. í síma 869 3088 eða á tölvupóstfanginu gik1@simnet.is