Vilt ÞÚ taka þátt í að móta Barnamenningarhátíð 2013?

Vilt ÞÚ taka þátt í að móta Barnamenningarhátíð 2013 

Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin í þriðja sinn á vordögum. Hátíðin er kærkominn vettvangur fyrir menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Hún er byggð upp á mörgum smáum viðburðum og rúmar allar listgreinar og allt sem að börnum snýr. Hátíðin hefur það ekki síður að markmiði að efla umræðu um barnamenningu í samfélaginu, fjölmiðlum og á torgum.

Eins og áður mun Höfuðborgarstofa ásamt stjórn Barnamenningarhátíðar vinna að samræmingu viðburða, kynningarstarfi og fleiru en viðburðirnir sem mynda dagskrá hátíðarinnar eru skapaðir og framkvæmdir af hugmyndaríkum einstaklingum, félagasamtökum, menningarstofnunum, leik-, grunn- og listaskólum út um alla borg.

Höfuðborgarstofa hvetur alla sem áhuga hafa á því að efla barnamenningu, hverju nafni sem hún nefnist, að leggja lóð á vogarskálarnar með því að setja upp viðburð í vikunni sem Barnamenningarhátíð stendur yfir, brydda upp á starfi tengdu barnamenningu eða kynna það sem þeir hafa fram til barnamenningar að leggja.

http://www.barnamenningarhatid.is.

Með góðri kveðju,

Karen M. Jónsdóttir, verkefnastjóri karen.maria.jonsdottir@reykjavik.is.

Guðmundur B. Halldórsson, verkefnastjóri gudmundur.birgir.halldorsson@reykjavik.is.

Arnfríður S. Valdimarsdóttir, verkefnastjóri arnfridur.solrun.valdimarsdottir@reykjavik.is.

P.s. Við hvetjum þig einnig til þess að „like“-a við Fésbókarsíðuna Barnamenningarhátíð í Reykjavík.