Taktu þátt! Forvarnardagur forsetans

Á morgun, miðvikudaginn 31. október verður Forvarnardagur forsetans, Taktu þátt! haldinn í 7. sinn.



Verkefnið er unnið að frumkvæði Forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitafélaga, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, Reykjavíkurborgar og HR auk Actavis sem er sérstakur stuðningsaðili verkefnisins. 

Framkvæmd verkefnisins felst í því að nemendur í 9. bekk grunnskóla vinna verkefni og sjá myndband er varða samveru með fjölskyldu, þátttöku í íþrótta- og æskulýðsstarfi, auk efnis er tengjast áfengis- og fíkniefnaneyslu.

Markmiðið er að ná fram sjónarmiðum unglinganna sjálfra.

Forseti Íslands mun heimsækja skóla utan Reykjavíkur á morgun en borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr mun heimsækja Árbæjarskóla í fyrramálið.

Að þessu sinni verður auk þess leitast við að fá nemendur framhaldsskóla með í verkefnið með því að fela þeim verkefni sem þau vinna í kennslustund vikuna sem forvarnadagurinn er haldinn.

Síðustu ár hafa niðurstöður verkefnavinnu unglinganna verið birtar í skýrslu sem er m.a. aðgengilegar á heimasíðu verkefnisins : www.forvarnardagur.is.