Borgarstjóri heimsótti Árbæjarskóla
Í dag var forvarnardagur Forseta Íslands, „Taktu þátt!“ haldinn 7. skipti. Að því tilefni mætti Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr í Árbæjarskóla. Borgarstjóri talaði við 9. bekkinga áður en þau fóru í verkefnavinnu, tengda deginum. Krakkarnir voru forvitnir um ýmislegt auk forvarnarmála. Spurningarnar snérust um Skíðasvæði Reykvíkinga, reiðstíga við Elliðavatn, samgöngumál, Ísbirni og fleira sem krökkunum var umhugað að spyrja um. Það sem var eiginlega hápunktur heimsóknarinnar var að einn nemenda óskaði eftir að fá „knús“ frá Borgarstjóra sem Jón varð við af ljúfmennsku, við mikinn fögnuð viðstaddra. Heimsókn borgarstjóra var vel heppnuð og góður undirbúningur fyrir verkefni krakkanna í dag.