Borgarstjóri tróð upp á Airwaves
Troðfullt var á Íslenska barnum við Austurvöll þegar Jón Gnarr borgarstjóri tróð upp á Iceland Airwaves í gærkvöldi. Komust færri að en vildu og myndaðist talsverð röð fyrir utan staðinn.
Borgarstjóri kom fram sem söngvari í dúettinum Kleópötru en hinn helmingur dúettsins er Sigurjón Kjartansson. Tóku þeir félagar fáein róleg lög og þrjú stuðlög sem gestir kunnu vel að meta, en þar á meðal voru hin sígildu og vinsælu stuðlög dúettsins, Krabbamein og Raddararí. Tók salurinn vel undir með Kleópötru í tveimur síðustu lögunum og var bros á hverju fési þegar borgarstjóri kynnti lögin.
Fjölmargir útlendir gestir sóttu tónleikana og kynnti Jón flest lögin á ensku. Dúettinn var klappaður upp og tók þá aukalagið Alkóhólistann sem féll vel í kramið hjá gestum á Airwaves.
Þess má geta að borgarfulltrúar Besta flokksins hafa í nógu að snúast á Iceland Airwaves nú um helgina. Einar Örn Benediktsson kemur þrisvar sinnum fram með hljómsveit sinni Ghostigital. Óttarr Proppé kemur fram með hljómsveitunum Dr. Spock og Ham en í síðastnefndu sveitinni spilar einnig aðstoðarmaður borgarstjóra, Sigurður Björn Blöndal, á bassa.