Borgarstjóri fagnaði með skátunum
Íslenskir skátar fögnuðu 100 ára afmæli sínu í gær, 2. nóvember með hátíðarsamkomu á Kjarvalsstöðum.
Bragi Björnsson, skátahöfðingi Íslands, bauð gesti velkomna og rakti sögu skátahreyfingarinnar á Íslandi. Hann afhenti síðan Jóni Gnarr borgarstjóra hátíðarklút íslenskra skáta í tilefni dagsins.
Jón Gnarr borgarstjóri ávarpaði einnig samkomuna. Í ræðu sinni sagðist borgarstjóri hafa hrifist af skátunum sem ungur drengur og hefði Baden Powell, upphafsmaður skátahreyfingarinnar verið í miklu uppáhaldi. Borgarstjóri þakkaði skátunum síðan fyrir mikið og gott starf og framlag þeirra til friðarmála í heiminum. Sagðist borgarstjóri hafa áhuga á að vinna með skátunum að því að gera Reykjavík að borg friðarins.
Ræðu borgarstjóra var vel fagnað með miklu klappi. Forseti Íslands tók einnig þátt í hátíðahöldunum. Skátarnir hafa staðið fyrir viðburðum í tengslum við aldarafmælið allt þetta ár. Landsmótið á Úlfljótsvatni var tileinkað afmælinu en einnig hafa skátarnir staðið fyrir skátaveröld í Hljómskálagarðinum á menningarnótt og friðarþingi í Hörpu í október.