Nú styttist í Skrekk 2012
Til leiks í Skrekk árið 2012 eru unglingadeildir í 25 skólum skráðar til keppni, á þremur undanúrslitakvöldum, í Borgarleikhúsinu þann 19. 20. og 21. nóvember. Á þessum kvöldum er keppt um sæti á úrslitakvöldinu sem haldið er þann 26. nóvember. Sú breyting verður á Skrekk þetta árið að dómnefnd velur tvö atriði í úrslit eftir hvert kvöld og þegar allir skólar hafa flutt atriðin sín velur dómnefndin tvö stigahæstu atriðin sem að eftir sitja áfram. Þannig að á sjálfu lokakvöldinu verða 8 atriði.
Í næstu viku fara starfsmenn Skrekks í heimsókn í alla skóla sem eru með atriði á til þess að skoða sýningaratriðin. Þá er gott að hafa tilbúna lýsingu á atriðinu.
Á hlekknum hér fyrir neðan er hægt að sjá hvaða kvöld þessir skólar keppa og einnig hvenær heimsóknir eru í hvern skóla.