Nýbygging fyrir framsækið skólastarf

Úrslit í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu við Menntaskólann við Sund voru kynnt nýverið og er ráðgert að byggingin verði tekin í notkun í ágúst 2015.  Samkeppnin skilaði 19 áhugaverðum tillögum um viðbyggingu og nýtt heildarskipulag á húsnæði skólans og voru nokkrar tillögur verðlaunaðar. 



Um verðlaunatillöguna segir í áliti dómnefndar að hún falli vel að framsæknu skólastarfi, samhliða því að byggingin samræmist vel núverandi skólabyggingu. „Hrífandi og hnitmiðuð tillaga sem vinnur einstaklega vel með áherslur skólans svo úr verður heildstæð og spennandi skólabygging“, segir í mati dómnefndar. 

Höfundar verðlaunatillögunnar eru Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur, Akos Doboczy, arkitekt og Zoltán V. Horváth, arkitekt hjá Skipulags-, arkitekta- og verkfræðistofunni ehf.  Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra afhenti viðurkenningar þegar niðurstaða dómnefndar voru kunngerð.



Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg standa sameiginlega að verkefninu. Nú að lokinni samkeppni tekur við verkleg hönnun og á henni að vera lokið um mitt næsta ár, en þá verður verkið boðið út til framkvæmda. Viðbyggingin verður  um 2.700 fermetrar og leysir hún þann húsnæðisvanda sem skólinn hefur búið við lengi.

Dómnefnd lagði áherslu á að tillögur skiluðu vandaðri og góðri byggingarlist, þ.m.t. form, efnisval og heildaryfirbragð, sem hæfði starfseminni. Horft var til samspils við eldra hús, bæði hvað varðar fyrirkomulag og yfirbragð. Leitað var eftir snjöllum lausnum með vel ígrunduðum innbyrðis tengslum, m.a. milli hæða, athyglisverðum rýmum í samræmi við markmið skólans um kennsluhætti, ásamt markvissri dagsbirtunotkun.

Álit dómnefndar í heild er að finna á vef Reykjavíkurborgar (sjá tengla undir ítarefni hér neðst á síðunni), en þar segir m.a. eftirfarandi:  

Viðbyggingin er í grunninn byggð á einföldum, uppbrotnum formum þannig að hún samræmist „skala“ núverandi skólabyggingar. Virðing er borin fyrir því sem fyrir er og sem dæmi er þetta er sú tillaga sem breytir hvað minnst útliti núverandi stjórnunarálmu. Gott samspil er á milli núverandi bygginga og viðbyggingar og skírskotar hún að hluta til núverandi húsa bæði í formum og efnisvali. Viðbyggingin hefur þó sín sérkenni m.a. sólskerma úr lerkivið og frjálslega formað bókasafn. Efnisval er mjög fallegt og mynda hvítir steyptir fletir ásamt lerki og grasþökum aðlaðandi umgjörð.Notkun viðar á svölum, í aðalanddyri sem og utanhúss, gefur húsinu hlýlegt yfirbragð. Við nánari útfærslu á lerkihjúp þarf að huga vel að sýn út úr íverurýmum.

Grunnmyndir viðbyggingarinnar eru einfaldar, skýrar og vandvirknislega unnar. Miðlægur salur og breiður gangur í núverandi stjórnunarálmu tengja viðbyggingu við eldri byggingar. Staðsetning steinasafns skólans í mjóum innigarði, á milli salar og gangs, er mjög frumleg lausn sem gerir áherslu skólans á náttúruvísindi hátt undir höfði.

Nýtt og reisulegt aðalanddyri tengir vel saman allar hæðir nýbyggingar og verður til þess að aðalinngangur verður áberandi kennileiti sem býður menn velkomna í skólann. Þaðan eru góð sjónræn tengsl á milli hæða sem gefa rýminu aukið vægi. Inn af aðalanddyri er skáli sem tengist fjölnotasal og bókasafni.

 

ÍTAREFNI:

Dómnefndarálit um verðlaunatillögu í hönnunarsamkeppni um nýbyggingu við Menntaskólann við Sund. Október 2012. (Pdf skrá - 2.74 Mb -  ATH. aðeins hluti dómnefndarálitsins). 

Dómnefndarálit hönnunarsamkeppni um nýbyggingu við Menntaskólann við Sund. Október 2012. (Pdf skrá – 26,77 Mb) 

Upplýsingasíða í Framkvæmdasjá.  (Lýsing verkefnis, tímaáætlun, afstöðumynd, tengiliðir) 

Fulltrúar í dómnefnd, ráðgjafar og starfsmenn. 

Dómstörf og niðurstaða dómnefndar.