Börn í erfiðum aðstæðum
Yfirskrift morgunverðarfundar Náum áttum 14. nóvember næstkomandi er: „Hvernig getur samfélagið stutt við börn í erfiðum aðstæðum?“
Steinunn Bergmann, verkefnastjóri hjá Barnaverndarstofu, er með erindi um börn í erfiðum aðstæðum. Guðlaug Thorlacious, félagsráðgjafi á geðsviði Landspítalans, segir frá Fjölskyldubrúnni og að lokum fjallar Hákon Sigursteinsson, deildarstjóri og sálfræðingur á þjónustumiðstöð Breiðholts um það að ná saman.
Morgunverðarfundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en með morgunverði kostar þátttakan 1.800 kr. (sjá auglýsingu). Fundarstjóri verður Margrét Júlía Rafnsdóttir. Náum áttum er samstarfsverkefni samtaka og stofnana í forvörnum en nýlega var vefsíða verkefnisins uppfærð.