Sundlaugarpartý í Árbæjarlaug

Félagsmiðstöðin Holtið í Árbæ hélt frábært sundlaugarpartý þriðjudagskvöldið 5. nóvember í samstarfi við Árbæjarlaug. Tónlistamennirnir DJ Natan og DJ Karl Anton sáu um að mixa tónlistina fyrir sundgesti og fórst þeim það vel úr hendi. Þessir ungu tónlistarmenn menn voru meðal þeirra sem skipulögðu sundlaugarpartýið fyrir unga gesti sem komu ekki aðeins úr Árbæ og nærliggjandi félagsmiðstöðvum heldur úr allri borginni.



Á fjórða hundrað ungmenni og fastagestir á öllum aldri skemmtu sér konunglega í Árbæjarlaug og þótti þetta óvenjulega partý sérlega vel lukkað. Þessi skemmtilegi viðburður var liður í menningardögum í Árbæ sem lýkur á föstudaginn 9. nóvember.