Kálfur undan Sæbjörgu

Kýrin Sæbjörg sem býr í fjósi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins bar aðfaranótt 8. nóvember myndarlegri kvígu. Kvígan er rauðskjöldótt og er nokkuð spræk. Hún fékk brodd strax eftir að hún kom í heiminn en það nefnist fyrsta mjólkin sem kemur úr kúm eftir burð sem og öðrum spendýrum. Broddurinn er mjög mikilvægur nýbornum kálfum þar sem þeir koma í heiminn án mótefna gegn smitandi sjúkdómum og í broddinum er að finna þau efni.



Meðgöngutími kúa er sá sami og hjá konum eða um níu mánuðir. Búist er við kálfi frá kúnni Brák í desember og fær þá nýborna kvígan leikfélaga.

www.mu.is.